Golfveisla í Úthlíð laugardaginn 30. júní

Ræst úr 8.00-10.20 og 13.00-15.20 laugardaginn 30 júní - gisting í boði í  tveggja manna herbergjum

30. júní verður haldin stórglæsileg golfhátíð í Úthlíð.

Golfmót:
18 holu punktakeppni og betri bolti, rástímar fyrir og eftir hádegi.
Spiluð verður venjuleg punktakeppni, en jafnframt mega (en þurfa ekki) pör,... sem saman eru í ráshóp tilkynna sig í aukakeppni í "betri bolta" rétt áður en leikur hefst og verður þá betra skor hvers pars (í punktum) fært á skorkortið til viðbótar hefðbundnu skori.
Boðið upp á kaffi og bakkelsi frá Reyni bakara í hálfleik.

Veisla og verðlaunaafhending:
Kl. 20:00 fordrykkur í Réttinni
Flott grillhlaðborð.
Eftirréttur og kaffi eftir mat.

Verðlaunaafhending og skemmtun með aðstoð hljómsveitarinnar Karma

Glæsilegir vinningar í boði, m.a. ferðavinningar:
Verðlaun fyrir 1. - 6. sæti í punktakeppni (ekki eru sérstök verðlaun fyrir karla og konur)
1.-3. sæti í betri bolta. Nándarverðlaun í karla- og kvennaflokki á báðum par 3 brautunum.
Verðlaun fyrir lengsta teighögg á 3. braut í karla- og kvennaflokki.
Ýmislegt dregið úr skorkortum

Verð 7000 kr. á mann.

Tilboð með gistingu 11.000 kr.

Gisting í tveggja manna herbergi með sér salerni og sturtu og aðgangi að eldhúsi, setustofu og heitum potti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband