Fimmtudaginn 23. ágúst kl 20.00 verður messa í Úthlíðarkirkju og að Guðþjónustunni lokinni verður hagyrðingakvöld í Réttinni. Á laugardaginn verður hið árlega stórmót Geirs goða golfmótið haldið á Úthlíðarvelli og um kvöldið verður dansleikur með gleðisveitinni Bjórbandinu frá Selfossi. Helgina 23. - 26. ágúst verður töðugjaldahátíð í Úthlíð Töðugjaldamessa Fimmtudaginn 23. ágúst kl. 20.00 verður messa í Úthlíðarkirkju þar sem sérstaklega verður þakkað fyrir einstaklega gott og gjöfult sumar. Prestur verður Sr. Hjálmar Jónsson. Halla Margrét Árnadóttir söngkona verður á ferðinni í Úthlíð og syngur einsöng. Söngsveinar Úthlíðarkirkju leiða almennan messusöng, Hilmar Örn Agnarsson sér um undirspil. Hagyrðingakvöld Að guðþjónustu lokinni verður svo samkoma í Réttinni þar sem Hjálmar Jónsson mun stýra hagyrðingakvöldi. Má búast við því að skemmtilegar stökur muni líta dagsins ljós. Eru hagyrðingar og aðrir sem hafa gaman af þjóðlegum fróðleik hvattir til að mæta. Geirs goða golfmótið Á laugardaginn verður hið árlega Geirs goða golfmót á Úthlíðarvelli og tekist á um Geirs goða- og Höllubikarinn. Leikinn verður höggleikur og veitt verðlaun fyrir karla og konur, með og án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á báðum par 3 brautunum. Þetta mót hefur jafnan verið árlegt uppskerumót þar sem kylfingar klúbbsins takast hressilega á og þurfa að spila sitt allra besta golf til að ná árangri. Núverandi handhafi Geirs goða bikarsins er Eiríkur Guðmundsson og handhafi Höllubikarsins er Jórunn Jónasdóttir. Skráning á mótið er á www.golf.is Ball með Bjórbandinu Um kvöldið mætir svo Bjórbandið í Réttina og heldur uppi fjörinu fram á nótt. Ballið hefst kl. 23.00 og er aldurstakmark 20 ár. Bústaðir til leigu á www.uthlid.is |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.