20.10.2009 | 17:07
Auknar tekjur og verulega mikið aukinn kostnaður
Það er ánægjulegt að sjá að það hefur vænkast hagur hjá ferðaþjónustunni í landinu en það eru tvær hliðar á þessum peningi eins og öllum hinum. Enginn er nú búmaður nema hann berji sér.
Ferðaþjónustan hefur þurft að horfast í augu við verulega hækkun á innkaupum á vörum sem stafar aðallega af hækkun á sköttum og breyttu gengi.
Við seljum vöruna oft hálfu ári áður en við afhendum hana og getur það sett ansi mikið strik í reikninginn þegar rekstrarumhverfið breytist jafn mikið og það hefur gert á þessu ári.
En núna þýðir ekkert annað en að bretta upp ermarnar og fá góðar hugmyndir um hvernig við fáum fleiri viðskiptavini til að heimsækja Ísland. Það er t.d. frábært að sjá framtak íbúa Kanaríeyja að senda 100 unga einstaklinga til Ísands og bjóða 100 Íslendingum að koma í heimsókn í staðinn. Minnir það nokk á eina af hugmyndunum sem komu fram á hugmyndafundi START 01 og fjallaði um að við ættum að bjóða erlendum ferðamönnum að fljúga til Íslands, frítt, fyrir utan aðal ferðamannatímann og láta þá koma með gjaldeyrinn til okkar.
Sjá nánar á frétt frá visir.is um málið
Sjá nánari upplýsingar um Ferðaþjónustuna í Úthlíð
|
400 milljónir í erlendum gjaldeyri á dag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



bjarnihardar
gattin
esv
ea
fleipur
photo
lydur
gummiarnar
soley
thorbjorghelga
steinisv
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.