Verslunarmannahelgin 2013

Verslo

Verslunarmannahelgardagskráin er bæði skemmtileg og fjölskylduvæn

Fimmtudagurinn 1. ágúst kl 2.3.00
Við byrjum á fjörugu húkkaraballi á fimmtudagskvöld. Kjörið fyrir alla sem þurfa að vinna um verslunarmannahelgina að mæta í Réttina og skmmta sér við að hlusta á Eyjólf Kristjánsson
Frítt inn

Föstudagurinn 2. ágúst kl. 23.00
Júlladiskó og Herbert Guðmundsson er baneitruð samsetning að góðri og vel heppnaðri skemmtun. Júlli í Júlladiskó á glæstan feril í bransanum og Hebbi er nú heimsfrægur á Íslandi og er loksins kominn í Tungurnar. Hver veit hvaða ár hann var síðast hér í sveit?
Aðgangseyrir 2000 kr.
 
 
Laugardagurinn 3. ágúst - 
Einar töframaður verður í Réttinni um miðjan daginn og kennir krökum að töfra. 
kl. 22.00 mætir Árni Johnsen í brekkuna fyrir neðan Réttina og stýrir brekkusöng við varðeldinn.  
kl. 24.00 titrar hlíðin okkar fríða þegar sjálfur konungur popparanna Björgvin Halldórsson mætir á svæðið ásamt  Rokkabilýbandinu og Matti Matt. 

Öll þjónusta opin og góða veðrið verður í Úthlíð um verslunarmannahelgina - það er best að vera bara í Úthlíð alla helgina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband