28.4.2012 | 13:02
Úthlíðarvöllur opnar snemma
Búið er að opna Úthlíðarvöll og hann kemur óvenju vel undan snjóþungum vetri. Snjórinn sem margir bölvuðu varði þó jörðina fyrir frostinu og þegar hann leysti var völlurinn klakalaus.
Búið er að setja holur á sumarflatirnar og slá þær. Afgreiðsla vallargjalda er í Réttinni.
Í dag er rigning en spáð þuru á mogun og ágætu veðri næstu daga.
|
Golfvellir koma vel undan vetri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2012 | 18:39
Þriggja daga hestaferð um ósnortna náttúru Suðurlands
Ferðaþjópnustan Úthlíð býður sumarið 2010 skemmtilegar 3 daga hestaferðir frá Úthlíð að Hagavatni og Langjökli. Leiðin er mjög fjölbreytt þar sem ferðast er um ægifagurt öræfalandslag, en einnig fetað á gömlum þingmannaleiðum svo sem Eyfirðingavegi, er lá um Hellisskarð til Þingvalla.
Miðum við að lágmarki 8 í ferð en einnig er möguleiki að skipuleggja ferðir með færra fólki.
Ferðatilhögun:
1. dagur – Mæting í Úthlíð kl. 10.00
Hestarnir teknir og þátttakendur kynnast hestunum í reiðgerði með reiðkennara sem er fararstjóri í ferðinni.
Hádegisverður
Kl. 13.00 lagt af stað frá Úthlíð og riðið að Mosaskarðsskála, 25 km.
Nesti snætt á leiðinni
Kvöldverður og kvöldvaka að íslenskum sveitasið.
2. dagur – morgunverður í skálanum
Riðið að Hagavatni og áfram meðfram vatninu allt að Nýjafossi, útfalli Hagavatns. Síðan er riðið niður með Leyifossi og Brekknfjöllum og að Mosaskarði þar sem gist er aðra nótt. Hér er fögur útsýn á Langjökul og Jarlhettur og margt áhugvert ber fyrir augu.
Nesti verður snætt á hádegi
Komið í skála um kl. 16.00 – kaffi og afslöppun.
Grillveisla um kvöldið og lagið tekið.
3. dagur – morgunhressing í skálanum
haldið til byggða og farið meðfram Lambahrauni, Kálfstindi og Högnhöfða að Brúará, með viðkomu í Hellisskarði og Brúarárskörðum, endað í Úthlíð. Hér er lengst af farið eftir grónum og mjúkum reiðgötum. Leiðin kallast Eyfirðingaleið. Nesti verður snætt á hádegi og síðdegishressing í Brúarárskörðum.
Endað í pottunum í sundlauginni í Úthlíð og með málsverði í veitingahúsinu Réttinni.
Ferðafólk heldur heim á leið.
Innifalið í pakkanum: Fæði, fararstjórn, hestar, hjálmar, reiðtygi, og gisting.
Ekki innifalið: Gestir þurfa að hafa með sér reið- og hlífðarfatnað.
Verð: 25.000 á dag - 3 daga fyrir þá sem koma beint í reiðtúrinn, 5 daga fyrir þá sem vilja gista í Úthíð.
Nánari upplýsingar og bókanir í síma 6995500 eða í tölvupósti uthlid@uthlid.is
Sjá myndband um ferðina hér:
http://www.youtube.com/watch?v=3nqHmWrkL0I
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2012 | 12:56
Bridsmót í Úthlíð laugardaginn 31. mars
Laugardaginn 31. mars verður tvímenningskeppni í bridge í Úthlíð Biskupstungum. Dagskrá er eftirfarandi:
- Frá kl. 11:00, Keppendur mæta, koma sér fyrir og fara yfir sagnkerfin.
- Frá kl. 12:00, Boðið upp á súpu og brauð í Réttinni.
- Kl. 14:00, Keppni í tvímenningi hefst (kaffihlé um kl. 16:30)
- Kl. 19:00, Kvöldmatur (lambalærisveisla með desert) og verðlaunaafhending.
- Eftir kvöldmat: etv. rúbertu útsláttarkeppni og annað skemmtilegt. Barinn opinn.
- Sunnudagur kl. 10:00-11:00, Léttur morgunmatur í Réttinni.
Góð verðlaun og vinningar fyrir efstu sætin.
Verð:
- 6000 kr. fyrir mótsgjald og mat.
- 10.000 kr. fyrir mótsgjald, mat og gistingu.
Skráning á uthlid att uthlid.is eða í síma 891 6107 (Þorsteinn). Sendið fullt nafn ykkar og makkers. Og hvort þið þurfið gistingu.
Ath. stakir spilarar mega líka skrá sig og við pörum þá saman þegar nær dregur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2011 | 14:01
Hvað er orsök og hvað er afleiðing
Merkilegar niðurstöður sem greiningardeild Aríonbanka kemur með varðandi ferðamannaiðnaðinn. Breytingin á gengi krónunnar hefur leitt til þess að Ísland verður þekkt í ferðabransanum sem hagstæður kostur þegar leggja skal land undir fót.
Leiðir það ekki af sér ferðamenn sem skoða hverja krónu velja ódýrt land til að heimsækja?
|
Sparsamir ferðamenn sækja Ísland heim |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2011 | 22:53
Bjarnaball í Réttinni Úthlíð laugardagskvöld
Laugardaginn 27. ágúst verður haldin mikil hátíð í Úthlíð, en þá verður hið árlega Bjarnaball í Réttinni.
Gleðin hefst kl. 20.00 með veglegu grillhlaðborði og verða skemmtiatriði undir borðum til kl. 22.00 en þá hefst dansleikurinn þar sem tvær hljómsveitir stíga á svið og hinn landsfrægi Bjarni Sigurðsson frá Geysi verður heiðursgestur kvöldsins. Hljómsveitirnar: Stuðgæjar Garðar og Úlfar, Svenni Sigurjóns og félagar Sérstakur gestur kvöldsins: Bjarni Sigurðsson frá Geysi.
Skráning í matinn er hafin, en það er best að senda tölvupóst á uthlid@uthlid.is eða hringja í síma 6995500 og láta taka frá borð. Takið fram nafn, netfang (ef þið eigið það), síma og hversu margir vilja sitja saman við borð.
Verð: Grillhlaðborð og ball 5500 kr. (sama góða verðið og í fyrra)
Bara ball 1500 kr.
Skráning í mat í síma 6995500 eða á tölvupósti: uthlid@uthlid.is
Sveitasælan: Réttin er opin frá kl. 9 alla daga vikunnar.
Golfvöllurinn er opinn kl. 9 - 20, skráning í rástíma og greiðsla flatargjalda er í Réttinni.
Síminn okkar er 699550
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2011 | 13:03
Mikið um að vera í sólinni: Trúbbi kl. 10 - 1 laugardagskvöld, golfvöllurinn, sundlaugin og hestaleigan opin - girnilegur grillseðill í Réttinni
Um helgina verður mikið um að vera í Úthlíð og má búast við því að það verði fjöldi fólks í öllum húsunum í skóginum og þótt víðar væri leitað.
Á laugardagskvöld ætlar hann Sigurður Reynir að koma með gítarinn og skemmta okkur í Réttinni frá kl. 10 - 1 eftir miðnætti
Sundlaugin er opin frá kl.11 - 20 um helgina og Réttin er opin frá kl. 9 - 1 eftir miðnætti.
Hestaleigan er opin og er mikilvægt að panta hesta fyrirfram svo þeir verði tilbúnir þegar þið mætið á staðinn.
Fylgist með dagskránni á www.uthlid.is og á http://www.facebook.com/uthlid
Góða skemmtun og kærar kveðjur frá öllum í Úthlíð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2011 | 12:19
Opið kvennagolfmót 17. júní - glæsilegir vinningar í boði
Opna kvennamót GÚ verður haldið föstudaginn 17. júní - í fánalitunum.
Ræst verður út af öllum teigum kl. 14.00, spilaðar 18 holur.
Verðlaunaafhending í Réttinni að móti loknu, ásamt fordrykk og kvöldverði.
Konur hvattar til að mæta í fánalitunum
Matseðill:
Súpa,
lambakjötssalat að hætti Nigellu,
kaffi og konfekt á eftir.
Verðlaun:
1 - 3 sæti í punktakeppni
Besta skor
Nándarverðlaun á 4. og 6. braut
Lengsta teighögg af nýja teignum á 5. braut.
Besti búningurinn "í fánalitunum"
Glæsileg skorkortaverðlaun
Skráning á www.golf.is (ath rástímarnir í skráningunni verða notaðir til leiðbeiningar fyrir hollaskráninguna).
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2011 | 17:04
Sauðburður stendur sem hæst
Það er fátt notalegra en að skella sér í bústað að vorlagi og hlusta á sumarið koma.Nú hefur lömbunum fjölgað mikið og því tilvalið að koma í heismókn í fjárhúsið um helgina.
Erum með tilboð á gistingunni - helgarleigan fyrir hefðbundið hús 30.000 kr.og 45.000 kr. fyrir vikuna.
Kynnið ykkur tilboðin
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2011 | 18:30
Messa kl. 16.00 í Úthlíðarkirkju á páskadag
það er mikill fjöldi fjólks í Úthlíð og nágrenni um páskana og margir hafa lagt leið sína í Úthlíð.
Á morgun páskadag verður messa í Úthlíðarkirkju kl. 16.00 og eru allir velkomnir. Að messu lokinni verður að vanda messukaffi í Réttinni og þá verður lagið tekið að vanda.
|
Bjarni 6 í Úthlíð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2010 | 11:28
Jólamessan 27. desember kl. 18.00
Jólamessa Úthlíðarkirkju verður haldin mánudaginn 27. desember, á þriðja í jólum, klukkan 18.00Prestur: Sr. Egill Hallgrímsson, Jón Bjarnason Skáholtskantór sér um orgelið og söngsveinar Úthlíðarkirkju syngja.
Að lokinni messu verður haldið í Réttina þar sem hægt verður að gæða sér á léttum veitingum og spjalla saman.
Kl. 20.00 hefst svo árleg og þónokkuð skemmtileg félagsvist. Við munum spila tvær umferðir og verður spilað upp á verðlaun í karla- og kvennaflokkum.
Bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.
Við þökkum kærlega fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða og hlökkum til að skemmta okkur með ykkur á næsta ári sem er afmælisár Ferðajónustunnar í Úthlíð.
Ykkar vinir í Úthlíð
Fylgist með dagskránni á www.uthlid.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




bjarnihardar
gattin
esv
ea
fleipur
photo
lydur
gummiarnar
soley
thorbjorghelga
steinisv